• Hyggelyset – Walnut
Alterlyset

Hyggelyset – Walnut

36 cm hátt kerti sem fæst í nokkrum litum.
100% umhverfisvænt sterín úr pálmaolíu.

Handsteypt.

Brennslutími er um 35 tímar.

Árið 1950 stofnaði Jens Andreas Dahl Hansen kertaverksmiðjuna HYGGELYS í Kaupmannahöfn og varð leiðandi í framleiðslu á kertum fyrir kirkjur víða í Danmörku. Hann hannaði fallegt og minimalískt kerti sem var fært um að standa sjálft á borði og gólfi. Kertið hefur síðan verið þekkt sem ALTERLYSET. Fjórða kynslóð sér nú um framleiðslu og dreifingu á kertunum í Evrópu.

Nú tæplega 70 árum síðar er komin nýjung frá fjölskyldunni, HYGGELYSET. Sama hönnun á kertunum nema þau eru lituð.

Hyggelyset eru handsteypt kerti sem framleidd eru úr 100% steríni sem unnið er úr umhvefisvænni pálmaolíu, viðurkenndri af RSPO, og bíflugnavaxi. Hið rétta hitastig við gerð kertanna skapar munstrið sem í þeim er svo hvert og eitt kerti fær sitt eigið útlit. Bómullarþráðurinn tryggir að kertin brenni hægt og jafnt.

Kertin eru umhverfis- og ofnæmisvæn.

Athugið:

– stytta skal þráð niður í 1 cm áður en kveikt er á kerti
– forðist að hafa kerti í dragsúgi látið kerti aldrei loga án eftirlits hreyfið aldrei kerti með fljótandi vaxi
– staðsetjið kerti þar sem börn og dýr ná ekki til
– ekki brenna kerti lengra niður en að efri brún á fæti
– mælt er með að nota kertaslökkvara þegar slökkt er á kerti

Ekki til á lager

Þessi vara er því miður ekki til á lager, þú getur skráð þig á biðlista hér að neðan.

Chat